Ímynd Íslands mun skaðast

McDonalds að hætta.. Þetta mun skaða ímynd landsins. Það er því spurning hvort erlendir ferðamenn fást til að koma til landsins ef þeir frétta að hér fáist ekki McDonalds. Nú er bara spurning hvort botninum séð náð eða hvort kókið hverfur líka.    
mbl.is McDonalds verður Metró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Pétursson

Þú hlýtur að gefa fundið út rétta Mac-Donalds "hamborgaragengið" - við vorum eð kolvitlaust "hamborgaragengi" - svo loksins þegar Mc-D gengið fer að færast í "réttar skorður"... þá yfirgefa þeir svæðið.....

Er þá bara ekkert að marka þetta Mc-D -"hamborgara-gengi"... eða hvað er í gangi...

Hvað er mac gegnið  á ísl krónunni núna - miðað við NY London Tokyo Madríd o.fl....

Hvað gengur á í genginu á þessum bæ...

Kristinn Pétursson, 26.10.2009 kl. 20:44

2 Smámynd: Offari

Það er ekkert hægt að bera okkur saman við aðrar þjóðir ef landið dettur út úr McDonalds vísitöluni.

Offari, 26.10.2009 kl. 20:55

3 Smámynd: Benedikta E

Það er gott að þeir eru að fara - hamborgararnir þeirra eru óætir eins og plast eða gólftuska - ÓGEÐ - !

Við erum með besta hráefni í heimi - hamborgarar úr kindahakki - fjallalambi !

Offari - hafðu ekki áhyggjur af kókinu - það er líka óholt og ógeðslegt fer vonandi líka úr landi !

Við erum með heimsins besta vatn í krönunum - Ísleska - VATNIÐ !

Þetta var heilsu-pistill dagsins ! Verði ykkur að góðu

Benedikta E, 26.10.2009 kl. 21:00

4 Smámynd: Offari

Ég get svo sem tekið undir með bragðgæðinn. Ég hef bara einu sinn smakkað hamborgara frá þeim og mig hefur ekki langað að fá mér svoleiðis aftur.  Kókið hef ég hinsvegar ekki drukkið síðan haft var í hótunum um einkaleyfið.  Því getum við sleppt líka.

Offari, 26.10.2009 kl. 21:06

5 Smámynd: SeeingRed

Já, vonadi fer ropvatnið sömu leið og sést ekki aftur hér.

SeeingRed, 26.10.2009 kl. 21:19

6 identicon

Sammála Benediktu hér að ofan,þetta er óætt drasl og coka kola má fara líka.

Árni Karl Ellertsson 26.10.2009 kl. 22:28

7 Smámynd: Offari

Þetta var aldrei spurning um bragðgæði heldur stíl.

Offari, 26.10.2009 kl. 23:35

8 identicon

Hver þarf coke og mcDonalds, þegar við höfum pepsi og kfc

Óli 27.10.2009 kl. 11:34

9 Smámynd: Offari

Við þurfum ekkert á þessu að halda. Hinsvega auglýsir Coca cola sig á heimsvísu. (veit ekki með McDonalds) því verður þetta skellur fyrir þau fyrirtæki að geta ekki auglýst á heimsvísu. Eða að Ísland verði gert að krummaskuði sem ekki telst með.

Offari, 27.10.2009 kl. 12:03

10 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Eigum við að stofna skyndibitastað, þar sem boðið er upp á súrsaða hrútspunga og mysu. Gæti komið vel út.

Höskuldur Búi Jónsson, 31.10.2009 kl. 12:13

11 Smámynd: Offari

Ég held að sá skyndibitastaður fengi bara viðskipti ákveðinn part af árinu.

Offari, 31.10.2009 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband